Boð á samráðsfund Newcastle united OSC

Newcastle United OSC bjóða félagsmönnum Newcastle-klúbbsins á Íslandi á fyrsta samráðsfund þeirra sem haldinn verður á átta vikna fresti milli Newcastle United og opinberra stuðningsmannaklúbba félagsins (Official Supporters Clubs).

Markmið fundanna er að efla samskipti, miðla reynslu og styrkja samstarfið þannig að þau halda áfram að byggja upp öflugt og samræmt net stuðningsmannaklúbba um allan heim. Klúbbum verður boðið eftir landsvæðum, til dæmis Evrópu, Asíu og Norður- og Suður-Ameríku.

Að þessum fyrsta fundi loknum er stefnt að því að halda fundi á átta vikna fresti.

Athugið. Viðkomandi þarf að hafa greitt bæði félagsgjöld Newcastle klúbbsins á Íslandi sem og MAGs meðlimagjald Newcastle United.

Dagskrá

1. Kynning frá fulltrúum stuðningsmannaklúbbanna

  • Kynning á hlutverki og ábyrgð hvers klúbbs sem opinbers stuðningsmannaklúbbs Newcastle United.

2. Reynsla stuðningsmannaklúbbanna hingað til

  • Hvað hefur gengið vel.

  • Hvar við getum bætt okkur eða veitt frekari stuðning.

3. Umræður um réttindi og ávinning stuðningsmannaklúbbanna

  • Newcastle United: Yfirferð á þeim réttindum og stuðningi sem nú er í boði og hvað félagið getur boðið upp á.

  • Stuðningsmannaklúbbarnir: Hugmyndir og tillögur að nýjum réttindum eða ávinningi fyrir næsta tímabil.

4. Samskipti

  • Hvernig þið viljið helst að samskipti okkar verði framvegis.

5. Önnur mál

  • Þau hlakka til að koma öllum saman, efla samstarfið enn frekar og halda áfram að byggja upp öflugt samfélag opinberra stuðningsmannaklúbba Newcastle United.

Microsoft Teams fundur

Tengjast fundi:
https://teams.microsoft.com/meet/39465826236241?p=FhEEWsC1nZj4CYp7JA

Fundarauðkenni (Meeting ID): 394 658 262 362 41

Aðgangskóði (Passcode): 4uK9bQ9m

Next
Next

Hópferð á leik Newcastle United gegn Manchester United 2. desember 2026