Hildur og stöllur hennar ósigraðar á toppnum

Hildur Antonsdóttir og stöllur hennar í Newcastle United eru á toppi ensku B-deildarinnar eftir 3-0 sigur á Burnley á St James’ Park á sunnudag. Newcastle hefur unnið sex af sjö deildarleikjum sínum og er með 19 stig, þremur meira en grannliðið Sunderland.

Hildur gekk til liðs við Newcastle í júlí eftir tvö ár hjá spænska félaginu Madrid CFF. Íslenska landsliðskonan hefur leikið átta leiki fyrir Newcastle í haust. Hún hefur komið við sögu í sex af sjö deildarleikjum liðsins, þar af fimm sinnum verið í byrjunarliðinu, og leikið tvo leiki í deildabikarnum.

Fyrsta mark Hildar í fimmta sigrinum

Newcastle vann alla fjóra deildarleiki sína í september. Liðið hóf tímabilið á 2-0 sigri á Wolves og vann síðan Bristol City, 1-0, á útivelli. Þá tóku við tveir heimaleikir í Gateshead þar sem Newcastle vann Sheffield United, 4-1, og Leicester City, 4-0.

Fimmti sigurinn í röð kom gegn Durham á útivelli í byrjun október. Hildur skoraði þar sitt fyrsta mark fyrir Newcastle þegar hún kom liðinu yfir á 34. mínútu. Markvörður Durham náði þá ekki að handsama boltann eftir hornspyrnu og Hildur var fljótust að átta sig og skaut upp í þaknetið af stuttu færi. Newcastle vann leikinn 3-0.

Nottingham Forest varð fyrst liða til að taka stig af Newcastle þegar liðin skildu jöfn, 2-2, á City Ground í lok október. Newcastle komst aftur á sigurbraut gegn Burnley á sunnudag. Kathleen McGovern kom liðinu yfir, sjálfsmark Deönnu Cooper tvöfaldaði forystuna og skoska sóknarkonan Martha Thomas innsiglaði sigurinn með níunda marki sínu í öllum keppnum í haust. Hildur sat á varamannabekknum allan leikinn.

Toppslagur á Stadium of Light

Newcastle hefur bæði skorað flest mörk í deildinni, 19 talsins, og fengið fæst á sig, aðeins þrjú. Næsti leikur er grannaslagur gegn Sunderland á Stadium of Light sunnudaginn 15. nóvember klukkan 14 að íslenskum tíma. Með sigri geta Hildur og stöllur hennar náð sex stiga forskoti á erkifjendurna.

Next
Next

Glæsilegt mark dugði bara til jafnteflis