Ein mikilvægasta umferð tímabilsins

Allt er svart og hvítt – nýr þáttur kominn út!

Nýr þáttur af Allt er svart og hvítt, hlaðvarpi Newcastle United klúbbsins á Íslandi, er kominn út. Að þessu sinni eru það Magnús Tindur, Sindri Matthías og Hjálmar Aron sem setjast við hljóðnemana og fara yfir það helsta í herbúðum Newcastle United.

Strákarnir ræða stöðu liðsins, frammistöðuna að undanförnu og hvað er fram undan. Þá fær Hildur Antonsdóttir að sjálfsögðu sérstaka umfjöllun, enda hefur hún farið vel af stað með Newcastle á tímabilinu. Við hvetjum allt stuðningsfólk til að leggja við hlustir!

Next
Next

Tímamót hjá Newcastle United