Back to All Events
Newcastle United klúbburinn á Íslandi stendur fyrir hópferð til Newcastle í desember þar sem farið verður á leik Newcastle United og Manchester United á St. James’ Park 2. desember 2026.
Alls eru 23 félagsmenn skráðir í ferðina og verður flogið út 1. desember. Í ferðinni verður sameiginleg dagskrá, meðal annars upphitun fyrir leik, leikurinn sjálfur og sameiginlegur kvöldverður daginn eftir.
Nánari upplýsingar um flug, gistingu, dagskrá og annað skipulag verða sendar þátttakendum þegar þær liggja fyrir.
Við hlökkum mikið til ferðarinnar og þess að upplifa Newcastle saman í svart-hvítum hópi.

