Aðalfundur Newcastle-klúbbsins á Íslandi 2026
Stjórn Newcastle-klúbbsins á Íslandi boðar hér með til aðalfundar félagsins sem haldinn verður laugardaginn 23. ágúst 2026 kl. 14:00 í hliðarsal Ölvers í Glæsibæ.
Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins, þar á meðal:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar
Ársreikningar og fjárhagsyfirlit
Kosning stjórnar
Lagabreytingar
Önnur mál
Félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnar eru hvattir til að senda framboð sitt á nufc@nufc.is fyrir fundinn. Nánari upplýsingar um lög félagsins má finna á nufc.is/log.
Að loknum aðalfundinum verður svo sannkölluð hátíðarstund þegar við komum saman á Ölver og fylgjumst með opnunarleik Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni gegn Liverpool.
Við hvetjum alla félagsmenn og stuðningsmenn Newcastle United á Íslandi til að mæta, taka þátt í aðalfundinum og hefja nýtt tímabil saman í góðum félagsskap.
Formaður Newcastle klúbbsins á Íslandi
Kristinn Bjarnason

