Cordero gengur til liðs við Newcastle
Newcastle United hefur tilkynnt að Antonio Cordero muni ganga í raðir félagsins 1. júlí, þegar samningur hans við spænska liðið Málaga rennur út.
Hinn 18 ára gamli Cordero, oft kallaður Antoñito, hefur leikið 60 leiki með aðalliði Málaga og í þeim leikjum hefur hann skorað sjö mörk og lagt upp níu.
Cordero, sem leikur með U19 ára landsliði Spánar, mun að öllum líkindum verða lánaður til annars liðs á næstu leiktíð eftir að hafa lokið félagaskiptunum.
„Það er sannur heiður að vera hér, sannur heiður og mikil ánægja. Ég stefni hátt og af hverju ekki að koma á einn besta stað í heimi til að gera það. Þetta er stórt skref og einmitt ein af ástæðunum fyrir því að ég er hér. Ég er mjög ánægður með að taka þetta skref og hlakka mikið til að hefja þetta ferðalag,“ sagði Cordero.
Cordero fæddist í Jerez de la Frontera í Andalúsíu og lék með yngri flokkum hjá liðum eins og Cádiz, Sevilla, Real Betis og Málaga áður en hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Málaga árið 2022.
Paul Mitchell, yfirmaður knattspyrnumála hjá Newcastle, bætti við:
„Cordero er spennandi leikmaður. Við erum mjög ánægð að fá hann til Newcastle United, sérstaklega í ljósi áhuga frá félögum bæði á Spáni og víðar um Evrópu. Hann hefur mikla möguleika og næsta skref í hans þróun verður að finna rétta lánsfélagið sem getur veitt honum áskoranir og styrkt hann enn frekar.“