Newcastle United kynnir nýtt félagsmerki
Newcastle United hefur kynnt nýtt félagsmerki sem tekur við af merkinu sem félagið hefur notað frá árinu 1988. Nýja merkið byggir á sögu og hefðum félagsins en hefur verið uppfært til að mæta kröfum nútímans.
Breytingin er niðurstaða rúmlega tveggja ára vinnu þar sem stuðningsmenn félagsins tóku virkan þátt í hönnunarferlinu en undirritaður, formaður Íslenska klúbbsins tók þátt í verkefninu. Alls greiddu 27.348 stuðningsmenn atkvæði um þrjár tillögur og hlaut sú sem varð fyrir valinu 64,8% atkvæða.
Við hönnunina var lögð áhersla á að varðveita helstu einkenni gamla merkisins, meðal annars kastalann, svarthvíta skjöldinn, sæhestana og ljónið. Útlitið hefur þó verið einfaldað og útfærslan betrumbætt til að merkið njóti sín betur á stafrænum miðlum, í sjónvarpi og á fatnaði.
Nýja merkið verður tekið í notkun í áföngum á næstu mánuðum og mun prýða keppnisbúninga Newcastle United frá og með tímabilinu 2027/28.
Með breytingunni vill félagið varðveita sterka ímynd sína og sögu, um leið og horft er til framtíðar.
Sjá nýja félagsmerkið og lesa nánar á heimasíðu Newcastle United.

