Newcastle United sendir íslenska stuðningsmannaklúbbnum glaðning

Stjórn Newcastle United klúbbsins á Íslandi barst í dag skemmtileg sending frá Newcastle United á Englandi í tilefni af opinberri viðurkenningu félagsins sem stuðningsmannaklúbbs Newcastle United.

Í sendingunni var meðal annars persónulegt bréf, undirritað frá framkvæmdastjóra Newcastle United ásamt staðfestingu á opinberri skráningu íslenska stuðningsmannaklúbbsins. Þá fylgdi ýmiss konar glaðningur, meðal annars bjórmottur, pennar og nafnspjöld.

Það sem vakti þó mesta athygli var stór fáni, sérstaklega merktur íslenska stuðningsmannaklúbbnum. Fáninn verður héðan í frá notaður á viðburðum félagsins hér heima og á leikjum Newcastle United erlendis.

Viðurkenningin er ánægjulegur áfangi í starfsemi klúbbsins og undirstrikar tengsl íslenskra stuðningsmanna við Newcastle United.

Stjórn Newcastle United klúbbsins á Íslandi færir Newcastle United kærar þakkir fyrir sendinguna og þann hlýhug sem íslenskum stuðningsmönnum er sýndur.

Howay the Lads! ⚫⚪

Next
Next

Óásættanleg útreið á Elland Road