Myndband frá hópferð Newcastle-klúbbsins
Hér er myndband frá Kolbeini Reginssyni sem fylgir eftir ferðasögu formanns frá hópferð Newcastle-klúbbsins í janúar, þar sem farið var á PSV-leik í Meistaradeild og síðar hitt hópinn fyrir leik gegn Aston Villa. Góð innsýn fyrir þá sem vilja kynnast leikdagsupplifuninni, þó ekkert jafnast á við að vera sjálfur á vellinum.
Kolli tók forskot á sæluna og fór á Meistaradeildarleikinn áður en hópurinn mætti saman á Aston Villa leikinn. Myndbandið er sérstaklega ætlað þeim sem hafa ekki áður farið á leik.

