Newcastle í Meistaradeildina
Leikmenn Newcastle United fengu skýr skilaboð fyrir síðasta leik tímabilsins þegar risastór borði var dregin yfir Gallowgate-stúkuna á St James’ Park með orðunum: „Þið genguð inn á völlinn sem leikmenn, en yfirgefið hann sem goðsagnir.“
Það var Everton sem kom í heimsókn á St James’ Park og spennustigið var hátt enda var mikið undir í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Staðan átti þó eftir að verða spennandi því Everton komst yfir í leiknum og Aston Villa var að gera jafntefli við Manchester United á sama tíma.
Newcastle átti erfitt uppdráttar í leiknum, því Everton stjórnaði leiknum og sérstaklega þegar Carlos Alcaraz skoraði eftir fyrirgjöf Vitaliy Mykolenko þegar um 25 mínútur voru eftir af leiknum. Lokatölur í leiknum urðu 1:0, fyrir Everton.
Andrúmsloftið varð þungt á St James’ Park eftir markið en svo brutust út gríðarleg fagnaðarlæti þegar fréttir bárust um að Manchester United væri að vinna Aston Villa á Old Trafford-leikvanginum.
Þegar leikurinn var flautaður af þurfti að bíða örlítið eftir staðfestingu á tapi Aston Villa. Þá gátu leikmenn Newcastle og stuðningsmenn fagnað opinberlega eftir langt og krefjandi tímabil, þar sem liðið tryggði sér loks þátttöku í Meistaradeild Evrópu.