Ramsey með sitt fyrsta mark
Newcastle United tryggði sér mikilvægan 1:2 sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Newcastle átti frábæran fyrri hálfleik og sóttu mikið á vörn Tottenham. Joe Willock setti boltann í netið á 44. mínútu en var dæmdur rangstæður eftir að hausinn á honum mældist fyrir innan. Newcastle náðu þó verðskuldaðri forystu rétt undir lok hálfleiksins, Malick Thiaw var maðurinn sem náði að troða sér fyrir framan vörn Tottenham eftir að Vicario varði skallann frá honum og potaði boltanum í netið, hans fjórða á tímabilinu.
Tottenham sýndi meiri kraft í seinni hálfleik og náði Archie Gray að jafna metin á 64. mínútu eftir fyrstu hornspyrnu heimamanna, Newcastle menn létu það þó ekki slá sig út af laginu og héldu áfram að sækja vel. Á 68. mínútu aðeins fjórum mínútum eftir jöfnunarmarkið nær Anthony Gordon að keyra inn í vítateiginn og lagði boltann til hliðar á Jacob Ramsey, sem smellti honum í hægra hornið á markinu í fyrstu snertingu. Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið.
Tottenham menn sóttu mikið á lokamínútum leiksins en Newcastle menn vörðust vel og kræktu sér í góðan verðskuldaðan sigur í London.
Newcastle situr í 10. Sæti með 36 stig eftir leikinn og heimsækir Aston Villa á Villa Park í F.A Cup bikarnum næsta laugardag.
Byrjunarlið: Pope - Burn, Botman, Thiaw, Trippier - Ramsey, Guimaraes, Willock - Barnes, Gordon, Elanga
Varamenn: Ramsdale, A.Murphy, Shahar, Hall (90’), Tonali (75’), J.Murphy (75’), Woltemade (88’), Wissa, Osula (88’)

