Síðasti heimaleikur endar í sigri: Trippier og Krafth kveðja

Newcastle United tóku á móti West Ham í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar síðastliðinn sunnudag. Heimamenn byrjuðu af krafti og komust í 2–0 eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Markvörður West Ham átti glórulausa sendingu sem Harvey Barnes komst inn í áður en hann lagði boltann fyrir Nick Woltemade, sem skoraði glæsilegt mark með viðstöðulausu skoti á 15. mínútu. William Osula bætti svo við öðru marki á 20. mínútu eftir frábæra sendingu Jacob Ramsey á milli varnarmanna og Osula setur boltann á milli fóta markmannsins.

Á 65. mínútu stal Joe Willock boltanum eftir innkast og lagði hann snyrtilega fyrir Osula, í miðjum vítateig West Ham, sem skoraði sitt annað mark í leiknum.

West Ham fékk tækifæri á 69. mínútu þegar Taty Casellanos skoraði með laglegu skoti utan teigs og flaug boltinn yfir Nick Pope sem stóð framarlega í markinu.

Leikurinn endaði 3-1 heimamönnum í vil, þessi sigur kom Newcastle í 49 stig og í 11 sæti deildarinnar. Vonin um Evrópukeppni lifir enn, en margt þarf að ganga upp.

Kieran Trippier og Emil Krafth kvöddu stuðningsmenn Newcastle eftir fjögurra og sjö ára veru hjá félaginu. Báðir voru þeir heiðraðir af félaginu fyrir frábært framlag sitt í treyju Newcastle.

Previous
Previous

Daufur lokaleikur hjá Newcastle gegn Fulham

Next
Next

Kveðjur til Newcastle-klúbbsins á Íslandi