Daufur lokaleikur hjá Newcastle gegn Fulham
Newcastle United heimsóttu Fulham í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Okkar menn voru langt frá sínu besta í leiknum og Fulham nýttu sér mistök og kæruleysi Newcastle til fulls.
Á 20. mínútu fengu heimamenn aukaspyrnu á hættulegum stað. Kevin tók spyrnuna og þrumaði boltanum í þverslána. Issa Diop var hins vegar fyrstur að átta sig á frákastinu og skallaði boltann auðveldlega í autt netið. Varnarleikur Newcastle í aðdragandanum var afar slakur þar sem leikmenn liðsins virtust einungis fylgjast með boltanum í stað þess að bregðast við.
Newcastle átti erfitt með að skapa sér opin færi, líkt og oft hefur sést á tímabilinu. Okkar menn komust í nokkur álitleg færi en skorti gæði á síðasta þriðjungi vallarins. Fulham fór því með verðskuldaða 1-0 forystu inn í hálfleikinn.
Seinni hálfleikurinn var lítið skárri, nokkrar breytingar á leikskipulaginu voru gerðar en ekki var það nóg til þess að koma sér aftur inn í leikinn.
Fulham tvöfaldaði forskot sitt eftir vel útfærða hornspyrnu á 80. mínútu. Boltinn barst til Tom Cairney fyrir utan vítateig Newcastle sem þrumaði boltanum í netið. Newcastle vörnin var of sein að stíga út á Cairney sem fékk alltof mikið pláss til að athafna sig fyrir skotið.
Newcastle endaði því tímabilið á 2-0 tapi á Craven Cottage og hafnaði í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 49 stig.

