Í minningu Kevin Keegan, sannrar goðsagnar Newcastle
Kóngurinn sem vann hjörtu Newcastle
Joseph Kevin Keegan fæddist 14. febrúar 1951. Keegan, eða „King Kev“ eins og hann var gjarnan kallaður, var einstaklega hlýr og mannblendinn maður sem kom fram við alla af virðingu. Hann naut mikillar aðdáunar langt út fyrir raðir fjölskyldu sinnar og samstarfsfólks. Það sást vel á þeim mikla fjölda sem kom saman við St. James’ Park til að minnast hans.
Kevin Keegan
Keegan og eiginkona hans, Jean, eignuðust tvær dætur, Lauru Jane og Söru Marie.
Glæsilegur ferill Keegans sýnir vel hversu framúrskarandi hann var, bæði sem leikmaður og knattspyrnustjóri. Hann vann til fjölda titla með Liverpool og lék síðar með Hamburger SV, þar sem hann var tvívegis valinn knattspyrnumaður Evrópu. Hann lék einnig með Southampton áður en hann gekk til liðs við Newcastle United. Keegan lék 63 landsleiki fyrir England og skoraði í þeim 21 mark.
Hann kom til Newcastle frá Southampton árið 1982 og lék stórt hlutverk í því að koma félaginu aftur upp í efstu deild. Keegan varð fljótt einn dáðasti leikmaður í sögu félagsins og lauk leikmannaferli sínum í svart-hvítu treyjunni árið 1984.
Keegan tók við stjórn Newcastle árið 1992 þegar liðið var í mikilli fallhættu. Koma hans hafði strax jákvæð áhrif og honum tókst að bjarga félaginu frá falli. Á næsta tímabili stýrði hann liðinu upp í úrvalsdeildina og hóf þar með eitt eftirminnilegasta tímabil í sögu félagsins.
Keegan endurnýjaði leikmannahópinn og byggði upp eitt besta og skemmtilegasta lið sem Newcastle hefur átt. Síðar fékk hann Alan Shearer heim frá Blackburn Rovers fyrir 15 milljónir punda, sem þá var heimsmet. Shearer átti eftir að skora 206 mörk fyrir Newcastle og verða markahæsti leikmaður í sögu félagsins.
Í apríl 1996 mætti Newcastle Liverpool í leik sem oft hefur verið nefndur einn sá besti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool vann 4:3, en þrátt fyrir ósigurinn sýndi Newcastle-lið Keegans hversu langt það hafði náð og hvers konar knattspyrnu það vildi leika.
Undir stjórn Keegans lék Newcastle einhverja skemmtilegustu sóknarknattspyrnu sem sést hefur í ensku deildinni. Tímabilið 1995–1996 náði liðið tólf stiga forskoti á Manchester United, en forskotið rann út á lokakafla tímabilsins og Manchester United varð meistari. Margir telja enn að Newcastle-liðið hafi verið verðugt þess að vinna titilinn.
Keegan stýrði Newcastle á árunum 1992 til 1997 og sneri aftur til félagsins árið 2008.
Kevin Keegan er án efa eitt stærsta nafn í sögu Newcastle United. Minning hans mun lifa um ókomna tíð og hafa komið fram hugmyndir um að reisa honum styttu við St. James’ Park, við hlið þeirra Sir Bobby Robson og Alan Shearer. Slíkur heiður væri í anda þeirra fjölmörgu stuðningsmanna sem hafa minnst hans við völlinn.
Keegan var einn dáðasti maður félagsins. Hann gerði engan mannamun og gaf sér alltaf tíma til að ræða við fólkið sem varð á vegi hans, hvort sem það voru fullorðnir eða börn. Eitt sinn stóð hann meðal annars fyrir því að yfir 400 börnum var boðið í ferð til Lapplands til að heimsækja jólasveininn.
Ég naut þeirrar ánægju að hitta Keegan í tvígang. Fyrra skiptið var árið 1997, þegar ég var staddur við St. James’ Park ásamt syni mínum. Við vorum mættir tímanlega fyrir leik og stóðum þar sem stytta Sir Bobby Robson stendur nú.
Við vorum að spjalla þegar maður sneri sér að okkur og spurði hvaða tungumál við værum að tala. Við sögðum honum að við værum frá Íslandi. Fljótlega tókum við eftir því að maðurinn var vel þekktur, enda komu margir til að heilsa honum og unglingar báðu hann um eiginhandaráritun.
Hann sagðist vera að bíða eftir manni en gaf sér engu að síður tíma til að spjalla við okkur. Hann bað okkur meðal annars að færa Laufeyju og Skúla, sem ráku ferðaskrifstofuna Alís á Íslandi, góðar kveðjur, enda þekkti hann þau vel.
Maðurinn var Sir John Hall, fyrrverandi eigandi Newcastle United og MetroCentre-verslunarmiðstöðvarinnar, sem þá var ein sú stærsta í Evrópu. Á meðan Sir John átti félagið tók St. James’ Park miklum breytingum og meðal annars voru Milburn-stúkan og Sir John Hall-stúkan endurbyggðar.
Kevin Keegan
Maðurinn sem Sir John beið eftir reyndist vera Kevin Keegan. John kynnti okkur og strax fundum við fyrir hlýju og einlægni frá Keegan. Þeir fengu lítið næði fyrir utan völlinn og ákváðu því að halda upp í stúku. Okkur feðgum til mikillar undrunar buðu þeir okkur að fylgja sér.
Þetta var ævintýri líkast. Þar sátum við með tveimur virtum mönnum sem augljóslega voru kóngar í sinni höll. Eftir eitt bjórglas þökkuðum við kærlega fyrir okkur og héldum að sætum okkar annars staðar í stúkunni.
Rúmu ári síðar var ég aftur á leik og hafði keypt miða á Platinum Bar. Keegan kom þangað og hélt stutta tölu fyrir leikinn. Ég var svo heppinn að sitja við fremsta borðið. Eftir ræðuna kom hann að borðinu, heilsaði mér og þakkaði fyrir spjallið síðast. Hann mundi eftir fundi okkar þrátt fyrir að meira en ár væri liðið.
Slíkar stundir og minningar gleymast aldrei. Þær hafa aðeins styrkt tengsl mín við félagið og tryggt að ekkert annað félag muni nokkru sinni eiga sama stað í hjarta mínu og Newcastle United.
Blessuð sé minning Kevins Keegan, eins merkasta leikmanns og knattspyrnustjóra í sögu Newcastle United. Vonandi á ég síðar eftir að koma aftur í „musteri guðanna“, St. James’ Park, og sjá styttu af þessum dáða manni við hlið þeirra Sir Bobby Robson og Alan Shearer.
Gjaldkeri Newcastle United klúbbsins á Íslandi
Hafsteinn Þórðarson
Félagi nr. 2

