Kevin Keegan - hetjan sem sameinaði félag, borg og stuðningsmenn

Newcastle kveður einn sinn allra ástsælasta son

Kevin Keegan kveður.

Fáir hafa sett jafn sterkan svip á sögu Newcastle United og Kevin Keegan. Hann kom til félagsins sem einn besti knattspyrnumaður heims, sneri síðar aftur sem knattspyrnustjóri og vakti félagið, borgina og stuðningsmennina til lífsins. Keegan lést 20. júlí, 75 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Hann var umkringdur eiginkonu sinni og dætrum á síðustu stundu.

Keegan hóf atvinnumannaferilinn hjá Scunthorpe United en sló í gegn hjá Liverpool. Þar varð hann þrisvar enskur meistari, vann Evrópukeppni meistaraliða, enska bikarinn og Evrópukeppni félagsliða tvisvar. Árið 1977 hélt hann til Hamborgar, varð þýskur meistari og hlaut Gullknöttinn tvö ár í röð, 1978 og 1979. Hann lék 63 landsleiki fyrir England, skoraði 21 mark og var fyrirliði landsliðsins í 31 leik.

Samband hans við Newcastle hófst árið 1982. Þrátt fyrir að vera tvöfaldur handhafi Gullknattarins valdi hann að ganga til liðs við félag í næstefstu deild. Koma hans kveikti strax nýja von. Keegan skoraði 48 mörk í 78 leikjum og hjálpaði Newcastle að tryggja sér sæti í efstu deild árið 1984. Hann lauk leikmannaferlinum á St. James’ Park og kvaddi völlinn með eftirminnilegum hætti, í þyrlu og enn klæddur í búning félagsins.

Kevin Keegan 1951 - 2026

Maðurinn sem fékk Newcastle til að trúa á ný

Átta árum síðar sneri hann aftur, nú sem knattspyrnustjóri. Newcastle var þá í miklum vandræðum og stefndi niður í þriðju efstu deild. Keegan bjargaði liðinu frá falli og leiddi það upp í úrvalsdeildina ári síðar. Þar tók við eitt eftirminnilegasta tímabil í sögu félagsins. Undir hans stjórn lék Newcastle áræðinn og stórskemmtilegan sóknarbolta. Liðið, sem fékk viðurnefnið „The Entertainers“, barðist um enska meistaratitilinn og heillaði knattspyrnuáhugafólk langt út fyrir borgarmörkin.

Keegan skildi leikinn eins og stuðningsmaður. Hann vildi vinna, en hann vildi einnig að fólk hlakkaði til að mæta á völlinn. Tilfinningarnar voru alltaf sýnilegar og samband hans við stuðningsmennina óvenju sterkt. Honum tókst að breyta því hvernig félagið leit á sjálft sig. Newcastle átti ekki aðeins að taka þátt, heldur þora að sækja fram og keppa við þá bestu.

KÓNGURINN KEV

Í leik með Newcastle United.

Mikill fjöldi fólks hafa vottað Kevin Keegan virðingu.

Keegan átti einnig tengsl við Ísland. Sem knattspyrnustjóri Manchester City samdi hann við Árna Gaut Arason árið 2004. Þegar Keegan heimsótti Reykjavík árið 2016 og kom fram á ráðstefnu í Hörpu sagði hann jafnframt enga ástæðu til þess að Ísland gæti ekki orðið Evrópumeistari. Ummælin lýstu honum vel. Hann hafði sjálfur sérstaka hæfileika til að fá fólk til að trúa því að hið ómögulega væri mögulegt.

Arfleifð Kevins Keegan verður ekki aðeins mæld í mörkum, sigrum eða verðlaunum. Hún lifir í minningunni um fullan St. James’ Park, óhrædda sóknarknattspyrnu og þá von sem hann kveikti hjá heilli kynslóð stuðningsmanna.

Newcastle United-klúbburinn á Íslandi sendir fjölskyldu Kevins Keegan, vinum hans og öllum þeim sem þótti vænt um hann innilegar samúðarkveðjur.

Hvíldu í friði, King Kev. Þín verður ávallt minnst.

Formaður Newcastle United klúbbsins á Íslandi
Kristinn Bjarnason

Previous
Previous

Í minningu Kevin Keegan, sannrar goðsagnar Newcastle

Next
Next

Nýtt sumar á St James’ Park