Beðið með að leita til sérfræðinga þar til Meistaradeildarsæti verður tryggt
Alexander Isak hefur leikið meiddur undanfarnar vikur og er ekki í fullu leikformi. Þetta kom fram í nýjasta hlaðvarpsþætti Allt er svart og hvítt þar sem greint var frá því að félagið hafi ákveðið að bíða með að leita til sérfræðinga þar til Meistaradeildarsæti er gulltryggt.
„Fyrir ykkur sem finnst að Isak sé ekki búinn að vera keyra á fullum þunga. Málið er það að hann er að glíma við nárameiðsli og er kannski aðeins 60% heill. Upplýsingarnar sem ég er með eru þær að félagið sé að bíða eftir því að þátttaka í Meistaradeildinni á næstu leiktíð verði staðfest. Þá verður leitað til sérfræðinga,“ sagði Magnús Tindri í þættinum.
Isak hefur verið lykilmaður í sóknarleik liðsins á leiktíðinni og skorað 26 mörk í öllum keppnum. Meiðslin virðast þó hafa hamlað frammistöðu hans að undanförnu, en félagið hefur ekki viljað taka neina áhættu sem gæti komið niður á úrslitum í lokaumferðunum í ensku úrvalsdeildinni.
Efstu fimm sætin í deildinni gefa sæti í Meistaradeild Evrópu og Newcastle situr sem stendur í þriðja sæti.
Umræðan um meiðsli Isak hefst á 2. mínútu hér að neðan.