Isak bjargaði stigi

Alexander Isak tryggði Newcastle United eitt stig er hann skoraði jöfnunarmark liðsins í 1:1-jafntefli á útivelli gegn Brighton síðasta sunnudag í ensku úrvalsdeildinni.

Newcastle hafði áður fengið tvö víti dæmd sem voru hins vegar dregin til baka eftir skoðun í VAR. Newcastle fékk svo þriðja vítið undir lok leiks þegar Yasin Ayari handlék boltann eftir aukaspyrnu frá Fabian Schär.

Eftir langa skoðun í VAR var víti dæmt og Isak skoraði af öryggi. Isak hefur nú skorað 23 mörk í deildinni á leiktíðinni.

Jafnteflið var fyllilega verðskuldað hjá Newcastle, sem sótti stíft og sýndi mikinn baráttuvilja í gegnum allan leikinn á suðurströndinni.

Brighton komst yfir á 28. mínútu leiksins og átti aðeins tvö skot á markið í leiknum og náði aldrei almennilega að finna taktinn.

Brighton-liðið vildi fá víti þegar Sandro Tonali virtist hafa brotið á Matt O'Riley í teignum, en dómarinn Craig Pawson lét leikinn halda áfram.

Callum Wilson, sem kom inn af bekknum, komst nærri því að stela öllum stigunum í uppbótartíma, en Bart Verbruggen í marki Brighton varði vel.

Jafnteflið hjálpar hvorugu liðinu mikið í baráttunni um Evrópusæti. Brighton situr áfram í tíunda sæti og Newcastle í því fjórða.

Næsti leikur Newcastle er á sunnudaginn kemur þegar Chelsea kemur í heimsókn á St James’ Park.

Svipmyndir úr leiknum frá mbl.is

Previous
Previous

Mikilvægur leikur um helgina – Chelsea kemur í heimsókn

Next
Next

Beðið með að leita til sérfræðinga þar til Meistaradeildarsæti verður tryggt