Félagaskrá Newcastle United-klúbbsins á Íslandi
Ágætu félagsmenn.
Stjórn Newcastle United-klúbbsins á Íslandi vinnur nú að því að yfirfara, leiðrétta og uppfæra félagaskrá klúbbsins.
Markmiðið er að tryggja að skráning félagsmanna sé rétt og að stjórn geti haft beint samband við fullgilda félagsmenn þegar koma þarf mikilvægum upplýsingum á framfæri. Þetta á meðal annars við um upplýsingar um miða á leiki ytra, aðalfund, félagsfundi, viðburði og aðrar samkomur á vegum klúbbsins.
Klúbburinn hér heima er nú orðinn fullgildur aðildarklúbbur Newcastle United. Því fylgir sú krafa að félagaskrá sé skýr og að til staðar séu réttar upplýsingar um félagsmenn, svo sem netfang og símanúmer.
Þá er einnig krafa Newcastle United að þeir sem óska eftir miðum á leiki séu skráðir MAG-félagsmenn hjá félaginu úti. Við biðjum því félagsmenn um að gefa upp MAG-númer sitt þegar óskað er eftir uppfærslu upplýsinga. Það auðveldar öll samskipti þegar klúbburinn sækir um miða fyrir félagsmenn sína.
Við hvetjum alla félagsmenn til að bregðast vel við þegar óskað verður eftir upplýsingum og hjálpa okkur þannig að halda félagaskránni réttri og uppfærðri. Uppfæra þarf upplýsingarnar hér.
Stjórn Newcastle United-klúbbsins á Íslandi.

