Frá endurvakningu til öflugs félagsstarfs – þrjú ár hjá Newcastle-klúbbnum á Íslandi

Frá því að Newcastle United klúbburinn á Íslandi var endurvakinn í desember 2023 hefur starfsemin tekið miklum breytingum. Félagsmönnum hefur fjölgað verulega, tengsl við Newcastle United í Englandi hafa verið formfest og hópferðir, viðburðir og miðlun hafa orðið fastir liðir í starfseminni. Stjórn klúbbsins hefur unnið að fjölmörgum verkefnum undanfarin ár og enn fleiri eru á dagskrá. Meðal annars árshátíð þar sem fyrrverandi leikmanni liðsins verður boðið á svæðið.

Í dag telur klúbburinn um 200 félagsmenn og er orðinn viðurkenndur, opinber stuðningsmannaklúbbur Newcastle United, svokallaður Official Supporters Club (OSC). Það hefur opnað nýja möguleika í miðamálum, samskiptum við félagið og samstarfi við stuðningsmannaklúbba víða um heim.

Á bak við þessa þróun liggur mikil sjálfboðavinna stjórnar og félagsmanna sem hafa lagt sitt af mörkum til að byggja upp öflugt samfélag Newcastle-stuðningsfólks á Íslandi.

Í dag eru fríðindi félagsmanna Newcastle United klúbbsins á Íslandi eftirfarandi:

  • Aðgangur að miðafyrirkomulagi klúbbsins fyrir leiki Newcastle United á St. James’ Park.

  • Þátttaka í skipulögðum hópferðum til Newcastle.

  • Félagsviðburðir og skemmtanir. Meðal annars aðgangur og afsláttur á árshátíð klúbbsins.

  • Aðild að opinberum stuðningsmannaklúbbi Newcastle United (OSC).

  • Félagsmerki og félagakort.

  • Aðgangur að öflugu samfélagi Newcastle-stuðningsfólks á Íslandi.

    *Von er á afslætti fyrirtækja fyrir félagsmenn.

Svo er auðvitað stuðningur við kostnað á rekstri félagsins, tæknileg atriði, vefsíðu, hlaðvarp og annað til.

Árgjald er 5.000 kr. og aðild er ókeypis fyrir börn yngri en 16 ára.

2023 – Klúbburinn vaknar aftur til lífsins

Newcastle United klúbburinn á Íslandi var upphaflega stofnaður árið 2003 og var nokkuð virkur fyrstu árin. Eftir langt hlé var ákveðið haustið 2023 að blása nýju lífi í starfsemina.

Þann 2. desember 2023 mættu 29 stuðningsmenn á endurvakningarfund á Ölveri í Glæsibæ. Þar voru lög félagsins samþykkt, stjórn kjörin og grunnurinn lagður að nýju félagsstarfi.

Markmiðið var einfalt: Að sameina stuðningsfólk Newcastle United á Íslandi, skapa vettvang fyrir samveru, skipuleggja ferðir og koma á formlegum tengslum við félagið í Englandi.

2024 – Grunnurinn lagður að nýju félagsstarfi

Árið 2024 fór stór hluti starfsins í að byggja upp innviði klúbbsins.

Formleg samskipti hófust við Newcastle United í janúar og jafnframt var leitað samstarfs við aðra stuðningsmannaklúbba, meðal annars á Norðurlöndum.

Nýr vefur, nufc.is, fór í loftið í september og varð miðstöð frétta, viðburða og upplýsinga um félagið. Samhliða var hlaðvarpið Allt er svart og hvítt sett af stað, þar sem stuðningsmenn ræða málefni Newcastle, leikina og allt sem fylgir því að halda með liðinu.

Ölver festist einnig í sessi sem heimavöllur klúbbsins á Íslandi. Þar fóru félagsmenn að hittast reglulega, horfa saman á leiki og njóta félagsskaparins.

Undirbúningur hópferða hófst jafnframt og smám saman varð til skýrari umgjörð um félagsaðild, skráningar og samskipti við félagsmenn.

2025 – Stórt framfaraskref í starfseminni

Árið 2025 markaði tímamót í starfsemi Newcastle-klúbbsins.

Einn mikilvægasti áfanginn var þegar klúbburinn fékk opinbera viðurkenningu Newcastle United sem OSC-stuðningsmannaklúbbur.

Með viðurkenningunni fékk íslenski klúbburinn beinan tengilið hjá Newcastle United, aðgang að formlegu miðakerfi og þátttökurétt í alþjóðlegu samstarfi stuðningsmannaklúbba félagsins.

Þetta var mikilvægt skref, enda hafði eitt helsta markmið stjórnar frá endurvakningunni verið að tryggja íslenskum stuðningsmönnum betri möguleika á að sækja leiki Newcastle United.

Ógleymanleg hópferð til Newcastle

Í apríl 2025 fór hópur 27 félagsmanna í uppselda ferð á leik Newcastle United og Manchester United á St. James' Park.*

Ferðin var skipulögð í samstarfi við ferðaskrifstofuna Visitor og tókst einstaklega vel. Fyrir utan sjálfan leikinn, sem Newcastle vann 4:1, var boðið upp á samveru og heimsóknir á þekkta stuðningsmannastaði í Newcastle. Lesa ferðasögu hér.

Í ferðinni voru einnig nýtt tækifæri til að styrkja tengsl við stuðningsmannaklúbba erlendis og fulltrúa Newcastle United.

Ferðin sýndi vel hversu mikilvægur þáttur hópferðir geta orðið í félagsstarfinu. Fólk sem áður þekktist lítið eða ekkert kynntist, myndaði vináttu og upplifði saman það sem sameinar okkur: Newcastle United.

Sögulegur bikarsigur og Ölver troðfullt

Einn eftirminnilegasti viðburður ársins var þegar Newcastle United vann enska deildabikarinn í mars 2025.

Yfir 200 stuðningsmenn komu saman á Ölveri til að fylgjast með úrslitaleiknum gegn Liverpool. Stemningin var með ólíkindum og fögnuðurinn eftir sigurinn verður lengi í minnum hafður.

Viðburðurinn vakti mikla athygli fjölmiðla og sýndi hversu stórt og öflugt samfélag Newcastle-stuðningsfólks er hér á landi.

Ný stjórn, aukin miðlun og skýrari umgjörð

Á aðalfundi klúbbsins 15. ágúst 2025 var farið yfir starfsemi ársins, ný stjórn kjörin og samþykktar breytingar á lögum félagsins.

Meðal annars var ákveðið að samræma starfsár klúbbsins betur knattspyrnutímabilinu, færa aðalfundinn yfir í ágúst og skýra ákvæði um fjárreiður og starfsemi félagsins.

Á árinu var jafnframt unnið að því að efla fréttamiðlun á nufc.is og newcastle.is, bæta samfélagsmiðla, halda úti hlaðvarpi og þróa áfram skráningu og þjónustu við félagsmenn.

2026 – Félagið stækkar og verkefnunum fjölgar

Árið 2026 hefur verið viðburðaríkt og umfang starfseminnar aukist verulega.

Félagsmönnum hefur fjölgað mikið, fleiri verkefni eru komin í fastari farveg og samstarfið við Newcastle United hefur orðið bæði reglulegra og markvissara.

Vel heppnuð hópferð í janúar

Í janúar hélt rúmlega 20 manna hópur til Newcastle á leik gegn Aston Villa á St. James' Park. Lesa ferðasögu hér.

Að þessu sinni sá klúbburinn sjálfur um skipulagningu ferðarinnar, meðal annars flug, gistingu, samgöngur og leikmiða.

Ferðin tókst vel og staðfesti að klúbburinn hefur byggt upp þekkingu og reynslu til að skipuleggja slíkar ferðir á eigin vegum.

Markmiðið er að geta boðið félagsmönnum reglulega upp á ferðir til Newcastle, eftir framboði á miðum og aðstæðum hverju sinni.

Öflugra samstarf við Newcastle United

Samskipti við Newcastle United hafa aukist jafnt og þétt.

Fulltrúar íslenska klúbbsins hafa tekið þátt í reglulegum samráðsfundum og vinnustofum með félaginu og öðrum OSC-klúbbum víða um heim.

Þar eru rædd fjölbreytt málefni, meðal annars miðasala, þjónusta við stuðningsmenn, stafrænar lausnir, samskipti og framtíðarskipulag stuðningsmannastarfsins. Íslenski klúbburinn hefur einnig fengið tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, meðal annars í umræðum um ásýnd og framtíð félagsins.

Uppbygging klúbbsins hér á landi hefur vakið athygli. Newcastle United hefur meðal annars sýnt áhuga á því hvernig íslenski klúbburinn hefur skipulagt félagsgjöld, þjónustu og félagsstarf, og hvernig sú reynsla gæti nýst öðrum stuðningsmannaklúbbum.

Í haust barst klúbbnum einnig formleg kveðja frá Newcastle United ásamt gjöfum og stórum fána sem verður notaður á viðburðum hér heima og á ferðum erlendis.

Um 200 félagsmenn og sterkari fjárhagur

Á aðalfundi 23. ágúst 2026 kom fram að yfir 90 nýir félagsmenn hefðu bæst við á undanförnum misserum og að heildarfjöldi félagsmanna væri nú um 200.

Alls greiddu 161 félagsmaður félagsgjald á síðasta starfsári. Félagsgjaldið verður áfram 5.000 krónur á ári, en ákveðið var að börn og ungmenni yngri en 16 ára fái framvegis gjaldfrjálsa fulla aðild að klúbbnum.

Fjárhagsstaða félagsins er góð og gefur stjórn svigrúm til að efla félagsstarfið og fjárfesta í verkefnum sem nýtast félagsmönnum.

Á fundinum var Birgir Pétur kjörinn nýr í stjórn. Urði Þórsdóttur og Hjálmari Aroni Níelssyni var jafnframt þakkað fyrir þeirra framlag til félagsins.

Betri þjónusta við félagsmenn

Á árinu hefur stjórn unnið að því að yfirfara og samræma félagaskrá klúbbsins.

Þar hefur meðal annars verið lögð áhersla á réttar greiðsluupplýsingar, netföng, Supporter ID og Mags-aðild hjá Newcastle United, en þær upplýsingar eru nauðsynlegar til að geta nýtt formlegt miðakerfi félagsins.

Unnið er að því að einfalda skráningar og innheimtu og draga úr handavinnu við umsýslu félagsins.

Jafnframt hefur verið unnið að nýjum félagakortum, rafrænum félagsskírteinum og barmmerkjum fyrir félagsmenn.

Þetta eru verkefni sem hafa tekið lengri tíma en áætlað var, en markmiðið er að ljúka þeim og bæta þannig þjónustu við félagsmenn.

Fréttir, hlaðvarp og samfélagsmiðlar

Miðlun hefur áfram verið mikilvægur þáttur starfseminnar.

Á nufc.is hafa verið birtar fréttir af Newcastle United, umfjöllun um leiki, viðtöl, ferðasögur og upplýsingar um viðburði klúbbsins.

Hlaðvarpið Allt er svart og hvítt fór einnig aftur af stað í haust og hafa nýir þættir verið gefnir út þar sem meðal annars er rætt um stöðu liðsins, leikmenn og það sem fram undan er.

Þá hefur Hildur Antonsdóttir, leikmaður kvennaliðs Newcastle United, fengið sérstaka athygli í umfjöllun klúbbsins. Það er ánægjulegt að eiga íslenskan fulltrúa hjá félaginu og við viljum fylgjast áfram vel með hennar gengi.

Markmiðið er að efla miðlun enn frekar og gera nufc.is að lifandi vettvangi fyrir íslenska stuðningsmenn Newcastle United.

Næst á dagskrá – Manchester United í desember

Næsta stóra verkefni stjórnar er hópferð til Newcastle í byrjun desember.

Klúbburinn hefur fengið 25 miða á leik Newcastle United og Manchester United sem fram fer á St. James' Park miðvikudaginn 2. desember.

Undirbúningur ferðarinnar hefur staðið yfir undanfarna mánuði og meðal annars verið unnið að flugi, gistingu, miðamálum, samgöngum og sameiginlegri dagskrá.

Flogið verður út 1. desember og gist á Sandman Signature-hótelinu, skammt frá St. James' Park.

Á leikdegi er stefnt að sameiginlegri upphitun á STACK og auk þess er unnið að borgargöngu, kvöldverði og annarri dagskrá fyrir ferðalangana. Verið er að undirbúa hitting með goðsögnum Newcastle í ferðinni.

Einnig hefur verið kannað hvort mögulegt verði að hitta Hildi Antonsdóttur á meðan á heimsókninni stendur.

Hvað er fram undan hjá klúbbnum?

Þótt mikið hafi áunnist frá endurvakningunni er enn fjölmargt sem stjórnin vill koma í framkvæmd.

Á næstu misserum verður meðal annars lögð áhersla á:

  • Fleiri hópferðir: Stefnt er að tveimur til fjórum ferðum á ári, eftir miðaframboði og aðstæðum.

  • Félagakort og félagsmerki: Að ljúka rafrænum félagsskírteinum og koma félagamerkjum og upplýsingum til félagsmanna.

  • Öflugra félagsstarf á Ölveri: Fjölga sameiginlegum leikjaáhorfum og gera aðstöðu klúbbsins sýnilegri með merkingum og skreytingum.

  • Árshátíð og félagsviðburðir: Unnið er að hugmyndum um árshátíð og fleiri viðburði þar sem félagsmenn geta hist utan hefðbundinna leikjadaga.

  • Fréttir og hlaðvarp: Efla reglulega útgáfu, bæta miðlun og virkja fleiri félagsmenn til þátttöku.

  • Félagavörur: Skoða möguleika á sérstökum varningi fyrir íslenska Newcastle-stuðningsmenn.

  • Alþjóðlegt samstarf: Halda áfram þátttöku í OSC-samstarfinu, meðal annars undirbúningi sameiginlegs Evrópuviðburðar stuðningsmannaklúbba árið 2027.

  • Fjölgun félagsmanna: Ná til fleiri stuðningsmanna um allt land og tryggja að klúbburinn sé opinn og aðgengilegur öllum sem halda með Newcastle United.

Félagsmennirnir eru hjartað í starfseminni

Frá því að 29 stuðningsmenn komu saman á Ölveri í desember 2023 hefur mikið vatn runnið til sjávar.

Það sem hófst sem tilraun til að endurvekja gamlan stuðningsmannaklúbb hefur þróast í öflugt félag með um 200 félagsmenn, reglulega viðburði, hópferðir, eigin miðla og bein tengsl við Newcastle United.

Á bak við þetta starf stendur fjöldi fólks sem hefur gefið tíma sinn og krafta til að láta hlutina gerast. Stjórn klúbbsins vill þakka öllum þeim sem hafa komið að starfinu frá endurvakningunni, hvort sem það er með stjórnarsetu, skipulagningu, miðlun, þátttöku í viðburðum eða einfaldlega með því að mæta og styðja við félagið.

Næsta skref er að byggja áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið, bæta þjónustuna, fjölga tækifærum til samveru og gera Newcastle United klúbbinn á Íslandi enn öflugri.

Við hvetjum alla stuðningsmenn Newcastle United á Íslandi til að taka þátt í starfinu, mæta á viðburði, hlusta á hlaðvarpið og vera hluti af samfélaginu.

Áfram Newcastle United! Howay the Lads!

kveðja, Kristinn Bjarnason
Formaður Newcastle United klúbbsins á Íslandi

Next
Next

Góður útisigur í Lundúnum