Hægagangur og óvissa á leikmannamarkaðnum

Yasir al-Rumayyan, stjórnarformaður, og Eddie Howe, knattspyrnustjóri

Sumarvertíð leikmannamarkaðarins hefur jafnan verið tími vonar og óvissu og staða Newcastle United í ár endurspeglar vel þær andstæður. Eftir tímabil þar sem félagið náði stórum áfanga með þátttökurétti í Meistaradeild Evrópu var búist við markvissum skrefum til að styrkja leikmannahópinn og byggja á þeim árangri. Þrátt fyrir slíkar væntingar hafa fyrstu vikur leikmannamarkaðarins einkennst af skorti á frumkvæði, óljósum áherslum og vaxandi áhyggjum meðal stuðningsmanna.

Félagið hefur þegar misst af leikmönnum eins og Liam Delap, sem gekkk til liðs við Chelsea, og Bryan Mbeumo, sem stefnir annað. Enn meiri vonbrigði gætu verið framundan, þar sem Liverpool virðist ætla að tryggja sér Marc Guehi, varnarmann Crystal Palace, sem Newcastle reyndi að fá í fyrra án árangurs. Þá virðist svo vera að viðræður um kaup á James Trafford og Anthony Elanga hafi dregist á langinn.

Ekkert dæmi undirstrikar þetta betur en sagan um Joao Pedro. Þrátt fyrir jákvæðar fregnir af því að samningaviðræður séu á góðri leið, eru skýr merki um að leikmaðurinn sé tregur við að skuldbinda sig, með von um að fá betra tilboð frá Chelsea. Óttast er að staðsetningin vegi þungt í ákvörðun hans.

Forystuleysi í leikmannamálum

Paul Mitchell og Darren Eales eru nú horfnir á braut.

Félagið hefur einnig glímt við óstöðugleika í stjórn og skipulagi. Brottför Paul Mitchell í vor kom fyrr en reiknað var með og eftirmann vantar enn í stöðu yfirmanns knattspyrnumála. Með bráðabirgðastjórn í leikmannamálum, þar sem Steve Nickson og Andy Howe halda utan um kaup og sölur, vantar bæði afgerandi forystu og skýra stefnu. Tækifærin glatast og keppinautarnir eru fljótari að slá til.

Þar að auki er enn óljóst hver tekur við stöðu framkvæmdastjóra eftir að Darren Eales hætti í september á síðasta ári. Nöfn hafa verið nefnd til sögunnar til að taka við, en engar ákvarðanir teknar. Þetta skapar mynd af knattspyrnufélagi í biðstöðu.

Tómarúm eftir brotthvarf Staveley

Amanda Staveley, fyrrum meðeigandi félagsins.

Margir stuðningsmenn horfa nú aftur til tímans þegar Amanda Staveley var í fararbroddi og helsti tengiliður við stuðningsmenn félagsins. Við brotthvarf hennar varð breyting á eignarhaldi félagsins; PIF og RB Sports & Media tóku yfir stærri hlut. Hún var sýnileg, opin og hluti af því að byggja upp trú eftir yfirtökuna á sínum tíma. Nú ríkir meiri fjarlægð og minna traust.

Mál eins og framtíð St James’ Park, þar sem talað er um mögulegan flutning á leikvanginum eða endurbyggingu eru dæmi um hvernig upplýsingaskortur kyndir undir óánægju. Það sem áður var persónulegt virðist nú rekið í gegnum lokaða fundarsali.

Það sem áður virtist kraftmikill byrjun hjá nýjum eigendum, gæti farið að líta út eins og glatað tækifæri – ef ekkert breytist.

Next
Next

Félagið í góðri stöðu til að eyða allt að 200 milljónum punda í sumar