Tilbúnir að gera Isak að launahæsta leikmanni Newcastle
Newcastle United ætlar að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda Alexander Isak og eru forráðamenn félagsins reiðubúnir að gera hann að launahæsta leikmanni í sögu þess, samkvæmt enska blaðinu The Times.
Félög á borð við Liverpool, Barcelona og Arsenal hafa öll sýnt Svíanum áhuga og Newcastle hyggst nú hefja viðræður við hann um nýjan samning sem myndi hækka vikulaun hans yfir 150 þúsund pund.
Þótt Liverpool sé talið hafa fjárhagslegt bolmagn til að koma með stórt tilboð, er ljóst að Eddie Howe og hans menn ætla sér ekki að selja Isak, sem á enn þrjú ár eftir af núgildandi samningi.
Isak, sem skoraði 23 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðastu leiktíð, hefur ekki látið í ljós neina óánægju né vilja til að fara. Samt sem áður hefur Newcastle áhyggjur af því að tilboð kunni að berast í byrjun næsta mánaðar.
Newcastle í góðri stöðu varðandi Isak
„Að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni gerir það mun auðveldara fyrir Newcastle að halda Alexander Isak. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum og félagið er í góðri stöðu til að standa fast á því að halda honum í sumar,“ sagði Keith Downie, fréttamaður Sky Sports.
„Isak sjálfur verður ánægðari með að spila í Meistaradeildinni ef hann verður áfram. Það var áskorun síðasta sumar. Ég tel þó að hann sjái fyrir sér að taka næsta skref í ferlinum síðar, hugsanlega næsta sumar ef ekki næst samkomulag um nýjan samning.
Hann veit að hann gæti þénað meira annars staðar og hann hefur mikinn metnað. Hvort Newcastle geti uppfyllt þann metnað er óljóst, en ég reikna með því að hann verði hjá félaginu í það minnsta eitt tímabil í viðbót,“ sagði Downie ennfremur.